Breiðholtslaug.Reykjavik.isSundlaugar Reykjavíkur verða opnar til klukkan 22 um helgar í sumar. Þetta var samþykkt á fundi menningar- og íþróttaráðs í síðustu viku.„Markmiðið er að bæta þjónustu við íbúa og samræma opnunartíma betur við lengri útivistartíma barna yfir sumarið,“ segir í tilkynningu frá borginni.Opnunartími sundlauga Reykjavíkur var styttur um klukkustund á laugardags- og sunnudagskvöldum í hitteðfyrra í hagræðingarskyni. Í fyrrasumar var opnunartíminn lengdur aftur yfir sumartímann.Í tillögunni sem samþykkt var í síðustu viku kemur fram að kostnaður vegna lengingar opnunartíma kosti 2,5 milljónir á mánuði eða 7,5 milljónir í heild yfir sumarið.