Hvernig ætli standi á því að þetta sé vinsælasti hátíðarmaturinn á borðum Íslendinga um jólin? Þegar maður þarf að finna svarið við einhverju svona er gott að leita til Vísindavefjarins og þar kemur eftirfarandi fram.„Stutta svarið við spurningunni er að hamborgarhryggur barst hingað frá Danmörku. Hann varð að eiginlegri jólahefð hér á landi, meðal annars vegna stóraukinnar svínaræktar sem Þorvaldur Guðmundsson, oftast kenndur við Síld og fisk, stofnaði til um miðjan sjötta áratug seinustu aldar á jörðinni Minni-Vatnsleysu á Vatnsleysuströnd.“ Þá vitum við það. Eins og með svo margar íslenskar jólahefðir kemur hamborgarhryggurinn frá Danmörku.„Heitið vísar til þýsku borgarinnar Hamborg, sem var og er enn mikilvæg hafnarborg í Norður-Þýskalandi en ekki síður miðstöð fyrir verkun og sölu á s