Margrét Kristín Blöndal sást á myndbandi sem var tekið í nótt um borð í skipinu Conscience þegar Ísraelsher stöðvaði skipið. Hún sést klædd björgunarvesti, sitjandi á þilfarinu ásamt öðrum skipverjum.Ísraelsher stöðvaði bátaflota frá svokölluðum Frelsisflota í nótt. Flotinn var á leið til Gaza með hjálpargögn.Myndskeið frá einum bátnum sýna hermenn ráðast inn í bátinn, yfirbuga áhöfn og reyna að eyðileggja myndavél um borð.Ísraelsmenn segja að bátarnir verði fluttir til hafnar í Ísrael. Þaðan verði aðgerðasinnarnir sendir úr landi.„Það er mjög súrrealískt að horfa upp á Ísraelsher ræna móður manns í beinni útsendingu, ég get ekki lýst þeirri reynslu öðruvísi,“ segi Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir, dóttir Margrétar.