„Þessar stéttir vinna náttúrulega mjög náið saman. Hvort sem það er á spítalanum eða á stofum þá er mikil samvinna, til dæmis þegar það er verið að greina geðraskanir þá er þetta gert í teymisvinnu. Svo er meðferð mjög oft tekin sameiginlega,“ segir Hrund Þrándardóttir, formaður Sálfræðingafélags Íslands, um eðli starfa sálfræðinga og geðlækna.Hrund og Engilbert Sigurðsson, prófessor í geðlækningum, ræddu við þær Steineyju Skúladóttur og Sigurlaugu Söru Gunnarsdóttur í nýjum þætti Heilabrots sem frumsýndur var í kvöld. Í honum er fjallað almennt um geðheilsu, sjálfsmynd, samfélagið, meðferðir og úrlausnir.„Geðlæknar vinna kannski meira með fólki sem glímir við alvarlegri veikindi myndi ég segja,“ segir Engilbert. „Svona margþætt veikindi sem að leiða til dæmis til innlagna.“