Einn fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar eftir mótorhjólaslys

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út klukkan hálf tvö í dag vegna mótorhjólaslyss í Staðarsveit á sunnanverðu Snæfellsnesi í dag.Þetta staðfesta Auðunn Kristinsson, framkvæmdastjóri á aðgerðasviði Landhelgisgæslunnar og Ásmundur Kristinn Ásmundsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vesturlandi.Ásmundur segir að maðurinn hafi verið einn á ferð, misst stjórn á hjólinu og farið út af vegi. Vegfarendur komu að manninum og höfðu samband við neyðarlínuna og var þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út í kjölfarið.Hann segir manninn hafa verið með meðvitund er hann var fluttur á Landspítalann í Reykjavík með þyrlunni, en kveðst ekki veita frekari upplýsingar um ástand hans og líðan að svo stöddu.

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd