Verzló og Tækniskólinn vinsælastir hjá stærsta árgangi sögunnar
Verzlunarskóli Íslands er vinsælastur meðal þeirra sem sóttu um nám í framhaldsskóla í haust. Umsóknir grunnskólanema í framhaldsskóla í ár voru 450 fleiri en í fyrra. Fjölmennasti árgangur Íslandssögunnar lauk grunnskóla í vor.621 setti Verzló í fyrsta val og næst á eftir var Tækniskólinn sem var í fyrsta sæti hjá 439 umsækjendum. Þar á eftir var Menntaskólinn í Kópavogi, sem 385 settu í fyrsta val, og svo Kvennaskólinn í Reykjavík með 363.Þegar fyrsta, annað og þriðja val voru tekin saman var Menntaskólinn í Kópavogi efstur á lista. Alls merktu 1.134 við MK í sinni umsókn, 1.073 við Tækniskólann og 1.071 við Fjölbrautaskólann í Garðabæ.Í heild bárust 5.127 umsóknir frá grunnskólanemum um nám í framhaldsskóla í haust, 450 fleiri en í fyrra. Samkvæmt upplýsingum frá Miðstöð menntunar og sk