Flugmóðurskip sem fært er í flestan sjó

Um borð í flugmóðurskipinu og freigátunni sem fylgir því eru samtals 650 sjóliðar og 140 hermenn. Þeir eru í fimm mánaða leiðangri með sérstakri áherslu á Norður-Atlantshaf.Skipið er kannski ekki eiginlegt flugmóðurskip eða flugvélamóðurskip því að það er þyrlumóðurskip. Flugvélar geta ekki lent á því. Flugbrautin er 199 metra löng og 37 metra breið. Bálhvasst var uppi á dekki þegar fjölmiðlum var sýnt skipið í dag. Hvassviðrið setur ekki strik í lendingu þyrlnanna sagði leiðsögumaður dagsins, miðskipsmaðurinn Gaëtan. Ekki tíðkast að upplýsa um eftirnöfn sjóliða heldur aðeins fornöfn.Þekking á Norður-Atlantshafi er lykillinn að vörnum Evrópu, segir skipstjóri á franska flugmóðurskipinu Mistral sem statt er í Sundahöfn. Þyrlur geta lent á því og skip siglt út úr því og skilað herbílum á lan

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd