Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu haldlagði tvo snáka sem fundust í heimahúsi á höfuðborgarsvæðinu. Frá þessu greinir lögreglan í færslu á Facebook.„Það er ýmislegt sem getur komið upp á vaktinni og lögreglumenn þurfa að vera við öllu búnir,“ segir í færslu lögreglunnar. Þar kemur fram að hér sé um að ræða brot á lögum um innflutning dýra. Eftir að lögregla haldlagði snákana voru gerðar viðeigandi ráðstafanir. Þær fólust í að lóga og farga dýrunum.Snákarnir sem lögreglan haldlagði.Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu