Flutningur innanlands jókst um 8,9%

Búferlaflutningur innanlands jókst um 8,9% á milli febrúar og mars. Alls skráðu 4.769 einstaklingar flutning innanlands í mars til Þjóðskrár.Miðað við sama mánuð á síðasta ári hafa flutningar aukist um 9,6% en þá skráðu 4.353 einstaklingar flutning innanlands.3.074 einstaklingar fluttu lögheimili í mars á höfuðborgarsvæðinu en af þeim fluttu 2.762 einstaklingar innan svæðisins.Á Suðurnesjum fluttu 461 lögheimili í síðasta mánuði en þar af fluttu 324 innan landshlutans og 108 til höfuðborgarsvæðisins. Á Suðurlandi fluttu 375 lögheimili sitt í síðasta mánuði. Þar af fluttu 294 innan landshlutans en 53 til höfuðborgarsvæðisins.Á Norðurlandi-eystra fluttu 404 lögheimili sitt en þar af fluttu 336 innansvæðis. 25 fluttu frá landshlutanum á höfuðborgarsvæðið.

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd