Öllum börnum sem fædd eru í júlí 2024 eða fyrr hefur verið boðin leikskólavist í Garðabæ.Í tilkynningu á vef bæjarins segir að alls hafi 235 börn verið innrituð og 200 flutningsbeiðnir verið afgreiddar. Þar segir einnig að hægt var að verða við fyrsta vali í flestum tilvikum og bjóða systkinum leikskólavist í sama skóla.Úrvinnsla úr boðnum plássum stendur enn yfir þar sem nokkrir foreldrar hafa ekki enn staðfest að þeir þiggi leikskólaplássið eða vilji flutning á milli skóla.Að meðaltali bætast 20-25 börn við á biðlistann í hverjum mánuði og eru leikskólar í Garðabæj að mestu orðnir fullsettir. Laus pláss eru enn á ungbarnaleikskólanum Mánahvoli þar sem 55 börnum verður boðin dvöl til viðbótar.Næsta innritunarlota verður í maí og verður þá innritað í laus pláss á Mánahvoli. Þá er einnig ta