Rán var framið í Gullsmiðju Ófeigs í gærkvöldi. Annar eigenda segir fjárhagslegt tjón nema að minnsta kosti nokkur hundruð þúsund krónur. Hann segir jafnframt að þjófarnir séu hið svokallaða vasaþjófagengi, sem herjað hefur á ferðamenn á Suðurlandi að undanförnu.