Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Árásir í fangelsum í Frakklandi

Gérald Darmien ræðir við fjölmiðla.EPA-EFE / ALAIN JOCARD / POOLÁrásir voru gerðar í nokkrum fangelsum í Frakklandi í nótt og í morgun. Þetta staðfesti Gérald Darmain dómsmálaráðherra Frakklands í færslu á X. Hann sagði að árásirnar hefðu beinst að því að hræða starfsmenn fangelsanna og í þeim hefði bæði verið kveikt í bílum og hleypt af skotvopnum.Árásir áttu sér stað í fangelsum á minnst fimm stöðum í Frakklandi, auk þess sem kveikt var í bíl sem lagt var við hús dómara í Marseille.Darmain gaf í skyn í færslunni að árásirnar tengdust baráttu gegn fíkniefnasmygli. Hann ætlar að heimsækja eitt fangelsanna, í Toulon, í dag til að styðja fangelsisyfirvöld þar.

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Engin ummæli

Um Blaðbera