Forsætisráðuneytið sendi fjölmiðlum í dag tölvupóstasamskipti ráðuneytisins og Ólafar Björnsdóttur og tímalínu um viðbrögð sín. Þar kemur fram að Ólöfu hafi aldrei verið heitið trúnaði, öfugt við það sem Ólöf hefur sjálf sagt. Aðstoðarmaður Kristrúnar sendi aðstoðarmanni Ásthildar skjáskot af fundarbeiðni með símanúmeri og heimilisfangi Ólafar.