Sunna Ósk Logadóttir og Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson eru rannsóknarblaðamenn ársins 2024 og blaðamaður ársins er Freyr Gígja Gunnarsson. Blaðamannaverðlaun Blaðamannafélags Íslands voru afhent í Grósku fyrr í dag. Þau eru veitt í fjórum flokkum – fyrir umfjöllun ársins, viðtal ársins, rannsóknarblaðamennsku ársins og blaðamannaverðlaun ársins. Verðlaunin fyrir rannsóknarblaðamennsku fengu Sunna Ósk Logadóttir og Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson fyrir fréttaskýringar um...