Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

„Ég vissi að við þessu mætti búast en ekki að þetta yrði svona erfitt“

Þorvaldur Kristinsson rithöfundur, bókmenntaritstjóri og aðgerðasinni í baráttu hinsegins fólks er fæddur árið 1950. Hann segist hafa það á tilfinningunni á eldri árum að gamalt fólk sé komið í tísku. „Já, ég hef haft það á tilfinningunni þegar til mín er leitað og mér líður rétt mátulega vel með það því mér þykir óskaplega gott að sitja í friði og vinna að mínu,“ segir Þorvaldur sem var gestur Sigurlaugar Margrétar Jónasdóttur í þættinum Segðu mér á Rás 1. „Hvort raddir gamalla eru merkilegri eða ómerkilegri en annarra, ég hef enga skoðun á því. Það fer allt eftir einstaklingum.“ LAS ÖNNU KARENINU ÁÐUR EN HANN VARÐ KYNÞROSKA Þorvaldur er alinn upp í Hrísey þar sem hann bjó til ellefu ára aldurs. Þá flutti fjölskyldan til Akureyrar þar sem Þorvaldur fór í gagnfræða- og menntaskóla. Árið

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta