Þórður Ingi Jónsson skrifar:Á dögunum fór ég í Bíó Paradís að sjá hina sígildu rökkurmynd frá Japan, Pale Flower eða Fölnað blóm, sem Masahiro Shinoda leikstýrði. Kvikmynd sem er talin vera ein af merkustu kvikmyndum japönsku nýbylgjunnar.Myndin var sýnd í samstarfi við japanska sendiráðið á Íslandi og segir frá Muraki, leigumorðingja í Yakuza-glæpagenginu illræmda, sem er sleppt úr haldi eftir að hafa setið inni í þrjú ár fyrir manndráp sem hann framdi samkvæmt fornum heiðursreglum hópsins, reglum sem honum var skipað að framfylgja af hærra settum drottnurum sínum í efri röðum gengisins. Reglur sem eru ekki ósvipaðar þeim sem samúræjar lutu í keisaraveldinu á öldum áður. Hins vegar kemst Muraki fljótt að því að rétt eins og hið stranga regluverk samúræja, þá eiga siðareglur gengisins ekk