Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Verktakar sem reisa nýtt hverfi hafa verið rafmagnslausir í hálft ár

Byggingarverktakar á Akureyri segja óviðunandi að ekki sé enn búið að leggja rafmagn í nýtt hverfi, þar sem framkvæmdir áttu að hefjast haustið 2023. Þar er keppst við að byggja íbúðarhús, en allar vinnuvélar þarf að knýja með rafmagni frá dísilrafstöð.Síðasta sumar hófst uppbygging íbúða í Móahverfi í norðvestanverðum Akureyrarbæ, talsvert á eftir áætlun en til stóð að hefjast handa í nóvember 2023. Fréttastofa ræddi við verktaka í október, sem þá höfðu nokkrir keypt sér stærðarinnar dísilrafstöðvar til þess að geta hafið framkvæmdir þó hvorki hafi verið vatn né rafmagn á svæðinu á þeim tíma. EIN OG HÁLF MILLJÓN Í DÍSILOLÍU Á MÁNUÐI Í dag eru verktakarnir sem byggja Móahverfið enn rafmagnslausir og kostar hvern þeirra um eina og hálfa milljón á mánuði að keyra vélar sínar á olíu. Stjór

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Engin ummæli

Um Blaðbera