„Við getum gefið okkur að allar manneskjur eru góðar og hafa blíðu og kærleika, en að hitt eigi sér stað á sama tíma finnst mér svolítið spennandi,“ segir leikarinn Almar Blær Sigurjónsson um myrkrið sem hann segir búa í öllum. Það sé hlutverk leikhússins að vinna með það og spegla.Almar Blær leikur í Heim, nýju íslensku leikverki eftir Hrafnhildi Hagalín sem frumsýnt verður í Þjóðleikhúsinu föstudaginn 7. febrúar. ÁKVAÐ AÐ SEGJA JÁ VIÐ ÖLLUM TÆKIFÆRUM SEM FÆRÐU SIG NÆR MARKMIÐINU Almar Blær ólst fyrstu tíu ár ævi sinnar í Reykjavík en flutti eftir það austur á Reyðarfjörð þaðan sem foreldrar hans eru. „Ég er fyrsta barn foreldra minna og þau frekar ung þegar þau eiga mig. Þannig ég fékk alveg óskipta athygli, kannski aðeins of mikla,“ rifjar hann upp.Hann minnist þess að hafa alltaf ve