Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Verkföll hafin – 5.000 börn sitja heima

Fundi í kjaradeilu kennara við hið opinbera lauk á ellefta tímanum í Karphúsinu í gærkvöldi án niðurstöðu. Verkföll hófust um mánaðamótin.Ástráði Haraldssyni ríkissáttasemjara þótti ekki tilefni til að boða til annars fundar eftir þann í gærkvöldi. Hann lagði fram innanhússtillögu á fimmtudag sem sveitarfélög og ríki hafa samþykkt en kennarar ekki.Þeir hafi gert tillögur um ýmsar breytingar á töllu hans, þær hafi verið ræddar um helgina en engin niðurstaða fengist.Fimm þúsund börn í 14 leikskólum og sjö grunnskólum sitja því heima í dag.Foreldrar leikskólabarna á leikskólanum Höfðaberg í Mosfellsbæ sem fréttastofa ræddi við í gær eru búnir að skipuleggja vikuna og fá jafnvel aðstoð landshluta á milli meðan á verkfallinu stendur.

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta