Staða reikistjarnanna á næturhiminum er áhugaverð þessa dagana. Nokkrar þeirra raða sér upp í röð. Það gerðist síðast fyrir 400 árum.Stjörnuhiminninn er óvenju fallegur þessa dagana og afstaða himintunglanna fram í febrúar áhugaverð. Sævar Helgi Bragason er umsjónarmaður Stjörnufræðivefsins. > Sex af sjö reikistjörnum sem sjást frá jörðinni eru á himni og verða fram í febrúar. Þá hverfur Satúrnus í birtu sólarinnar og svo er Merkúríus ekki sjáanlegur núna því hann er bara of nálægt sólinni. Þannig að við höfum á himninum núna Mars, Júpíter, Venus og Satúrnus líka. Þessi stjörnustaða hófst snemma á þessu ári þegar að allar reikistjörnurnar voru saman á himni. Þannig getur það verið í nokkrar vikur í senn á um það bil tveggja ára fresti. > En það að þær raði sér upp eins og núna, það gerð