Bryndís Klara Birgisdóttir er manneskja ársins að mati hlustenda Rásar 2. Andlát Bryndísar Klöru hafði mikil áhrif á íslenskt samfélag á árinu en hún lést eftir hnífaárás á Menningarnótt.Fréttir af ofbeldishrynu og hnífaburði ungs fólks höfðu verið áberandi og í kjölfar þessa skelfilega atburðar ákvað fjölskylda hennar og vinir að átak þyrfti að gera til að bjarga öðrum mannslífum. Foreldrar hennar eru hrærðir yfir viðbrögðunum og þeirri staðreynd að Bryndís Klara lifi í huga þjóðarinnar.Minningarsjóður var stofnaður í kjölfar andlátsins þar sem áhersla er lögð á fræðslu og vitundarvakningu, meðal annars um afleiðingar af vopnaburði ungmenna.