Benjamín Netanjahú leggst undir skurðhnífinn í dag.EPA-EFE / RONEN ZVULUNÍsraelski forsætisráðherrann Benjamín Netanjahú gengst undir skurðaðgerð í dag þar sem blöðruhálskirtill hans verður fjarlægður.Ráðherrann greindist með þvagfærasýkingu á miðvikudag sem rakin er til góðkynja stækkunar blöðruhálskirtilsins, að því er segir í tilkynningu frá skrifstofu hans. Því var ákveðið að grípa til þess að fjarlægja blöðruhálskirtilinn. Netanjahú, sem er 75 ára, fór í kviðslitsaðgerð í mars og í júlí á seinasta ári græddu læknar í hann hjartagangráð.