Í lok september verður nafni Rúmfatalagersins breytt í JYSK. Í tilkynningu frá Rúmfatalagernum segir að nafnbreytingin sé síðasta skrefið í viðamiklum breytingum síðustu ára með endurnýjun verslana og aukinni áherslu á þjónustu, gæði og upplifun viðskiptavinaHaft er eftir Birni Inga Vilhjálmssyni, framkvæmdastjóra Rúmfatalagersins, að fyrirtækið hafi breyst gríðarlega frá opnun árið 1987 og sé í dag miklu meira en lager af rúmfötum. Nafnið endurspegli ekki lengur vöruúrval verslunarinnar og mikil tækifæri liggi í endurnýjun vörumerkisins. NAFNBREYTINGIN SÉ STÓR ÁSKORUN OG ÖRUGGLEGA EKKI ÓUMDEILD „Nafnbreytingin er vissulega stór áskorun og örugglega ekki óumdeild hjá einhverjum, en við teljum þetta vera rétt og jákvætt skref fyrir okkur og viðskiptavini okkar og tengslin við JYSK sem er