Rokið á Keflavíkurflugvelli var það mikið fyrr í dag að ekki var hægt að nota ranana á flugvellinum. Flosi Eiríksson staðgengill upplýsingafulltrúa Isavia segir í samtali við fréttastofu að nú síðdegis hafi vél flugfélagsins Play lent á vellinum og að tekist hafi að koma farþegum frá borði þrátt fyrir hvassviðrið.Mörgum flugum félagsins til og frá flugvellinum í dag hefur seinkað mikið vegna veðurs. Af alls 13 ferðum félagsins í dag var fjórum aflýst.Það flugfélag sem á flestar brottfarir og komur í dag er Icelandair. Félagið aflýsti þrettán flugum. Guðni Sigurðsson upplýsingafulltrúi Icelandair segir flugáætlunina vera minni í dag en alla jafna. „Hún er ekki mjög stór á 25. des. Það eru fáir að fljúga þennan dag. Það kom sér ágætlega að veðrið hafi hitt á þennan dag svo sem. Það eru sjö v