Heimavarnaráðherrann Alejandro Mayorkas reyndi í gær að sefa ugg almennings vegna ókennilegra loftfara sem sést hafa yfir New Jersey og New York í Bandaríkjunum. Þeirra hefur einnig orðið vart í Virginíu og Maryland, líkt og sjá má á myndskeiðum á samfélagsmiðlum. Ríkisstjórn Joes Biden hefur legið undir þungu ámæli fyrir að reyna ekki að útskýra uppruna flygildanna. Mayorkas segir ljóst að sum faranna séu drónar, önnur mannaðar flugvélar sem auðvelt sé að villast á og drónum. Hann segir málið á borði ráðuneytisins og að almenningur verði umsvifalaust upplýstur komi á daginn að eitthvað glæpsamlegt sé á seyði eða erlend öfl á ferð. Ekkert bendi þó til þess. Gagnrýni heyrist jafnvel meðal samflokksmanna forsetans. Chuck Schumer, leiðtogi Demókrata í öldungadeildinni, hvetur heimavarnaráðune