„Kosningar setja svip sinn á lista yfir vinsælustu leitarorðin á Íslandi á árinu. Og það sama er reyndar upp á teningnum í fleiri löndum, því það var kosið víða í heiminum á árinu. Til dæmis í Bandaríkjunum, sem Íslendingar fylgdust greinilega vel með,“ segir Jesper Vangkilde, samskiptastjóri hjá Google í Danmörku.Hann segir það góðs viti í lýðræðissamfélagi að fólk sé duglegt að fletta upp og leita upplýsinga um frambjóðendur, flokka og kosningapróf.Nöfnurnar Halla Tómasdóttir og Halla Hrund Logadóttir voru þær sem flestir Íslendingar flettu upp í leitarvél Google á árinu. Kosningar settu svip sinn á lista yfir vinsælustu leitarorð ársins hér á landi.Ár hvert tekur Google í Danmörku saman lista yfir annars vegar það fólk sem flest slógu upp í leitarvél Google á árinu og svo lista yfir vin