Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Mikilvægt að vegfarendur séu vel merktir en ökumenn verða líka að axla ábyrgð

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur áhyggjur af hve oft er ekið á gangandi vegfarendur. Nóvember hefur verið sérlega slæmur. NÓVEMBER MJÖG SLÆMUR Samkvæmt tölfræði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er að meðaltali ekið á 27 gangandi vegfarendur á ári. Tölurnar ná aftur til 2020. Það sem af er þessu ári hafa 26 tilvik verið tilkynnt til lögreglu.„En það sem við erum að sjá er að nóvember hefur verið mjög slæmur. Það eru sex tilvik sem við höfum þurft að fara á vettvang það sem ekið hefur verið á gangandi vegfarendur, þar af tvö tilvik mjög alvarleg. Þannig að við höfum töluverðar áhyggjur af þessu,“ segir Árni Friðleifsson, aðalvarðstjóri umferðardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. SNJÓRINN VEITIR BIRTU Ekið var á gangandi vegfaranda á Langholtsvegi síðdegis í gær. Hann var fl

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta