Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Töldu vindmyllur ógna þjóðaröryggi og bönnuðu þær

Áform um að reisa fjórtán vindorkuver á Eystrasalti, úti fyrir ströndum suðaustanverðrar Svíþjóðar, hafa orðið að engu vegna aukinnar spennu í samskiptum Vesturlanda við Rússland. Sænski herinn setti blátt bann við byggingu þeirra.Yfirmenn hersins segja að vindmyllurnar myndu trufla eftirlitstæki hersins og draga úr möguleikum hans til að verjast árás. Þar horfa menn til Kalíngrads, rússnesks landsvæðis milli Litháens og Póllands, sem liggur að Eystrasalti.Truflanir frá vindmyllum myndu stytta viðbragðstíma við eldflaugaárás um helming, svo að Svíar hefðu aðeins mínútu til að grípa til varna, sagði Pål Jonson, varnarmálaráðherra landsins.Stjórnvöld leggja áherslu á uppbyggingu vindorku en segja önnur svæði út af ströndum Svíþjóðar henta betur fyrir hana.

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta