Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Musk vill fækka stjórnendum og skera niður fé til fjölmiðla í almannaþágu

Elon Musk, sem fer fyrir nýju hagræðingarráðuneyti í næstu ríkisstjórn Bandaríkjanna, ætlar að spara hundruð milljarða dollara í skrifræði. Meðal annars ætlar hann að skera niður fé til almannaútvarps og baráttuhóps fyrir þungunarrofi.Musk útleggur nokkrar leiðir til sparnaðar í ríkisútgjöldum í grein í Wall Street Journal. Þar segist hann ætla að spara verulega í opinberum stjórnunarkostnaði. Meðal annars á að gera lista yfir reglur sem opinberar stofnanir hafa gefið út en ekki fengið samþykki þingsins og Donald Trump geti þar með ógilt þegar hann sest á forsetastól. Með því verði komið í veg fyrir að einstaka stjórnendur geti seilst of langt. Þetta gefi líka möguleika á að fækka starfsfólki verulega.Musk nefnir líka að fé verði skorið niður til fjölmiðla í almannaþágu og samtakanna Plann

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Engin ummæli

Um Blaðbera