Stjúpsonur krónprinsins í vikulangt gæsluvarðhald
Marius Borg Høiby, stjúpsonur norska krónprinsins, hefur verið úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald. Hann hefur verið ákærður fyrir tvær nauðganir en neitar sök.Marius var handtekinn á mánudagskvöld, grunaður um nauðgun en lögregla hefur hafið rannsókn á annarri nauðgun eftir það sem Høiby er einnig sakaður um.Øyvind Bratlien, lögmaður Høiby, sagði við fjölmiðla í kvöld að þeir myndu íhuga að áfrýja úrskurðinum á morgun.Lögreglan í Noregi hafði upprunalega farið fram á tveggja vikna langt gæsluvarðhald og rökstuddi beiðnina með því að óttast væri að átt yrði við sönnunargögn í málinu. Hún rannsakar nú tvær nauðganir sem Marius Høiby hefur verið ákærður fyrir. Hann neitar sök í báðum málum. SEX FÓRNARLÖMB Alls hefur Høiby verið ákærður, í nokkrum mismunandi málum, fyrir brot gegn sex ei