Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Verslunarmannahelgin 2023: Regngalli og sólarvörn koma að góðum notum

Verslunarmannahelgin nálgast og ferðahugur eflaust kominn í marga. Það gæti reynst erfitt að elta veðrið sem verður fjölbreytt víðast hvar á landinu. Elín Björk Jónasdóttir, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir samt margt geta breyst eftir því sem nær dregur helgi þótt nú sé útlit fyrir að skin og skúrir skiptist á um mestallt land.„Svo það má segja að það sé enginn einn staður sem stendur upp úr eða að langbesta veðrið sé á einhverjum einum stað. Þannig það hefur oft verið meira afgerandi spá um verslunarmannahelgina heldur en núna.“Er erfiðara að elta veðrið?„Já, og það er kannski ekki sérstök þörf á því. Það sem ég mundi mögulega segja er að það er útlit fyrir að það gangi í svolítið kalda norðvestanátt á norðvestanverðu landinu á sunnudagskvöld. Þannig að þau sem veldu að fara

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta