Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fjögur börn á sama leikskóla með e.coli-smit

Fjögur börn sem öll eru á sama leikskóla í Reykjavík hafa greinst með e.coli-sýkingu. Foreldrar barna á leikskólanum Mánagarði, við stúdentagarðana við Eggertsgötu, fengu að vita um þetta í gærkvöld, að því er fram kemur á vef mbl.is.Þar segir að fleiri börn af leikskólanum séu komin á bráðadeild Landspítalans þar sem beðið er staðfestingar á hvort þau hafi einnig smitast. Leikskólanum hafi þar að auki verið lokað í gær.Foreldrar barna á Mánagarði hafi verið hvattir til þess að leita á bráðamóttökuna ef vart yrði um niðurgang eða hita hjá börnunum. Málið sé jafnframt komið á borð sóttvarnalæknis.

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta