Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Hvað þýða borðarnir sem Halla og Friðrik báru?

Það var mikið um dýrðir í Kristjánsborgarhöll í gærkvöld í hátíðarkvöldverði sem danska krúnan hélt vegna opinberrar heimsóknar Höllu Tómasdóttur forseta. Salurinn var hátíðlega skreyttur og stólum raðað upp eftir hefðarinnar reglum.Meðal þess sem iðulega vekur athygli við aðstæður sem þessar eru orðurnar sem helstu þátttakendur bera og borðar sem þau klæðast. Þjóðhöfðingjar fá æðstu stig slíkra orða iðulega við embættistöku sína og í tengslum við opinberar heimsóknir. En hvað tákna borðarnir og skiptir máli hversu breiðir þeir eru? HALLA FÉKK FÍLSORÐUNA Halla Tómasdóttir forseti var með ljósbláan borða Fílsorðunnar á hátíðarkvöldverðinum í gær. Það er æðsta viðurkenningin sem danska krúnan veitir.Uppruna Fílsorðunnar má rekja aftur til 15. aldar þó að hún hafi formlega orðið til 1693.

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta