Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Biden og Netanjahú ræða saman eftir margra vikna hlé

EPA-EFE / Samsett RÚVJoe Biden Bandaríkjaforseti og Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, eiga bókaðan fund í dag. Búist er við því að þar muni Biden reyna að takmarka hefndaraðgerðir Ísraels gegn Írönum.Íranir skutu 200 eldflaugum að Ísrael 1. október og hafa Ísraelar heitið hefndaraðgerðum. Bandaríkjastjórn styður rétt Ísraels til að svara fyrir sig en hefur talað fyrir því að hefndaraðgerðir beinist ekki gegn kjarnorku- eða olíuinnviðum Írans. Íranir hafa varað Ísrael við að svara fyrir árásina.Margar vikur eru síðan Biden og Netanjahú áttu síðast beint samtal. Það er til marks um stirð samskipti leiðtoganna síðustu misseri, en Netanjahú hefur að miklu leyti hunsað óskir Bandaríkjastjórnar um að ýta ekki frekar undir óstöðugleika í Miðausturlöndum, svo sem með því að ráðast inn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta