Yazan Tamimi, ellefu ára hælisleitandi frá Palestínu, og foreldrar hans fengu í dag alþjóðlega vernd á Íslandi á grundvelli sjónarmiða um viðbótarvernd. Þetta segir Albert Björn Lúðvígsson, lögfræðingur fjölskyldunnar, í samtali við Heimildina. Albert segir að þetta þýði að fjölskyldan fái tveggja ára dvalarleyfi á Íslandi sem þau geti síðan endurnýjað. „Það þýðir að þau eru örugg á Íslandi.“ Spurð...