Fyrrverandi yfirlæknir sveitarfélagsins Frosta í Þrændalögum í Noregi hefur verið ákærður fyrir að nauðga 88 kvenkyns sjúklingum sínum við læknisskoðanir árabilið 2004 til 2022. Ákæran nær þó lengra en svo því konurnar sem misgert var við samkvæmt henni eru 96 í heildina.