Verkfall yfir hundrað starfsmanna Sveitarfélagsins Hornafjarðar hefði víðtæk áhrif á starfsemina að sögn bæjarstjórans, ekki síst í leik- og grunnskólum. Ganga þurfi í að leysa málið. MIKIL ÁHRIF Atkvæðagreiðsla um verkfallsboðun stendur nú yfir hjá félagsmönnum í Afli starfsgreinafélagi sem vinna hjá sveitarfélaginu og lýkur henni 24. september og komi til verkfalls skellur það á 2. október og verður ótímabundið. Bæjarstjórinn segir að verkfall myndi hafa mikil áhrif.„Það gefur náttúrlega auga leið að ef að yfir hundrað starfsmenn hjá Sveitarfélaginu Hornafirði fara í verkfall þá hefur það víðtæk áhrif á starfsemina, bæði leikskóla, grunnskóla og ýmsa aðra starfsemi og það væri bara hið versta mál,“ segir Sigurjón Andrésson bæjarstjóri. Deilan er hjá ríkissáttasemjara og fer Samband ís