Aðdragandi að útgáfu fyrstu breiðskífu Mono Town var ansi langur og ævintýralegur en hljómsveitin varð til um 5 árum fyrir útgáfu fyrstu breiðskífunnar eða árið 2009 en breiðskífan kom ekki út fyrr en árið 2014.Í þættinum var þessari sögu gerð skil en þar sagði m.a. frá tónleikaferðalagi með Pixies þar sem Monotown hitaði upp og samningum við erlenda tónlistarveitu.Þú getur hlustað á umfjöllunina í spilaranum hér fyrir ofan en þáttinn má finna í heild sinni í spilara RÚV.