Framkvæmdastjóri Vísis í Grindavík segir stefnt að því að koma fyrirtækinu í full afköst og að sem flestir af starfsmönnunum geti verið komnir í gistingu í bænum áður en vetur skellur á. Grindvíkingar séu alltaf að læra betur að lifa með eldsumbrotunum. Hann fagnar því að um liðna helgi hafi tvö þúsund tonnum af salti verið landað í bænum.