Veðurstofan spáir vestlægum vindi í dag, þremur til tíu metrum á sekúnduð og skýjuðu með köflum. Norðvestanlands verður suðvestanátt, átta til fimmtán metrar á sekúndu og hvassast á Vestfjörðum. Í kvöld lægir. Víða má búast við bjartviðri en dálitlar skúrir verða vestantil. Á morgun verður austlæg átt, 3-10 metrar á sekúndu og skýjað með köflum, smá væta með suðurströndinni. Hiti fimm til tólf stig yfir daginn, en sums staðar vægt næturfrost. RÚV / Ágúst Ólafsson