Brian Jeffrey Raymond var dæmdur til 30 ára fangavistar.FBI / ASSOCIATED PRESSTæplega fimmtugur, bandarískur leyniþjónustumaður, hefur verið dæmdur í þrjátíu ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fjölda kvenna í nokkrum löndum. Brian Jeffrey Raymond lýsti sig sekan af ákæru um eitt kynferðisbrot í nóvember auk annarra brota.Saksóknari segir Raymond hafa byrlað konunum ólyfjan, afklætt þær, beitt þær kynferðisbofbeldi og tekið ljósmyndir af þeim.Alríkislögregla Bandaríkjanna hóf rannsókn á brotum Raymonds fyrir rúmum fjórum árum þegar nakin kona hrópaði á hjálp af svölum húss í Mexíkóborg, þar sem hann hafði aðsetur. Lögregla segir ljósmyndir og myndskeið af nöktum konum hafa fundist í tölvum Raymonds, sem starfaði árum saman fyrir leyniþjónustuna.