Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út til aðstoðar veiðimanni í Sandvík

Björgunarsveitirnar Gerpir, Brimrún og Ársól á Austfjörðum voru kallaðar út um miðnætti til að aðstoða við að koma manni úr Sandvík á Austfjörðum. Maðurinn var þar á hreindýraveiðum ásamt þremur öðrum. Svo fór að einnig þurfti að kalla út þyrlu Landhelgisgæslunnar þar sem enginn vegur liggur að Sandvík. Hún er á milli Vöðlavíkur og Viðfjarðar, í nágrenni við Eskifjörð og Neskaupstað. Þangað er eingöngu fært á fæti eða með báti. Maðurinn fékk verk fyrir brjóstið og treysti sér ekki til að ganga lengra.Daði Benediktsson, formaður Björgunarsveitarinnar Gerpis í Neskaupstað, sagði í samtali við fréttastofu í nótt að fjalllendið í Sandvík sé bratt og því þótti ekki hættandi á annað en að kalla til þyrlu. Farið var með manninn á sjúkrahúsið í Neskaupstað.

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Engin ummæli

Um Blaðbera