„Við erum eyja, fámenn þjóð og með örtungumál. Þetta er tungumál sem okkur finnst mikilvægt að vernda og viðhalda en svo látum við einkareknum fyrirtækjum það eftir að gefa út barnabækur sem eru verkfærin fyrir börnin okkar,“ segir Dröfn Vilhjálmsdóttir, upplýsingafræðingur sem starfar á skólabókasafni í grunnskóla. „Einkarekin fyrirtæki þurfa að sjálfsögðu að láta reksturinn ganga upp og bækurnar eru þar með markaðsvæddar. En börnin hafa enga rödd á þeim markaði.Dröfn skrifaði færslu á Facebook sem vakti mikla athygli um helgina. Rithöfundar og útgefendur hafa lagt orð í belg í umræðu um framboð barnabóka á íslensku. Dröfn ræddi við Morgunútvarpið á Rás 2 um barna- og unglingabækur á íslensku. BÖRN ÁHUGASÖM UM BÆKUR OG LESTUR ÞVERT Á ÞAÐ SEM HALDIÐ ER FRAM „Ég skrifaði þessar hugleiðin