Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Stórjuku framleiðslu vegna gúrkuskorts en fleira en samfélagsmiðlar spila inn í

Framleiðsla á gúrkum er að komast á réttan kjöl á ný eftir gúrkuskort í ágúst. Samfélagsmiðlar áttu sinn þátt í skortinum en framleiðsla hefur aukist um allt að fimmtíu prósent á síðustu vikum.Gúrkuskorturinn hefur vakið mikla athygli hérlendis og erlendis. Hann fór að gera vart við sig um miðjan ágúst og má ætla að samfélagsmiðlar hafi haft áhrif þar sem gúrkusalat náði miklu flugi á TikTok. Kristín Linda Sveinsdóttir, markaðsstjóri hjá Sölufélagi garðyrkjumanna, segir fleiri þætti þó hafa spilað inn í.„Það var til dæmis sólarleysi fyrst og fremst,“ segir Kristín. Þá hafi líka áhrif þegar bændur skipta út plöntunum sínum en það er gert fjórum sinnum á ári. Ákveðið ójafnvægi geti myndast þegar plönturnar eru ekki farnar að gefa nægilega vel af sér og afkasta að fullu. „Svo þegar þetta var

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta