Lögreglan man ekki eftir öðru eins: Brotist inn í fimm hjólabúðir í sumar
Færst hefur í aukana að hjólum sé stolið úr verslunum, þá sérstaklega rafmagnshjólum. Lögregla segir ástandið óeðlilegt og verið sé að rannsaka málið.Frá því í lok apríl hafa lögreglunni borist tilkynningar um fimm innbrot í reiðhjólaverslanir. Brotist var inn í Örninn, Kríu, Peloton, TRI og Púkann og að sögn Guðmundar Péturs Guðmundssonar lögreglufulltrúa var aðallega dýrum rafmagnshjólum stolið.Hann segist ekki muna eftir öðru eins. „Nei, ekki núna undanfarin ár,“ segir hann. Auðvitað sé einu og einu hjóli stolið, til dæmis úr sameignum og á förnum vegi, en það sé nokkuð nýtt að brotist sé svona mikið inn í verslanir. „Það er klárlega markaður fyrir svona hjól.“ LÍKLEGA FÓLK Í FÍKNIVANDA AÐ AFLA FJÁR Talið er að í þessum tilfellum sé aðallega fólk í fíknivanda að reyna að verða sér út