Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Falsfréttir ná flugi á samfélagsmiðlum

Rangar og misvísandi upplýsingar hafa farið eins og eldur í sinu um samfélagsmíðla, eftir atburði undanfarinna daga í Bretlandi og á Ólympíuleikunum. Heimsþekkt fólk er meðal þeirra sem dreift hafa falsfréttum.Orðrómur á samfélagsmiðlum um 17 ára árásarmann í Southport í Bretlandi var kveikjan að margra daga óeirðum sem hófust skömmu eftir að minningarathöfn var haldin um börn sem létu lífið.Breska lögreglan neyddist til að tjá sig opinberlega um að upplýsingar á samfélagsmiðlum um árásarmanninn væru ósannar.Skúli Bragi Geirdal, fjölmiðlafræðingur og sérfræðingur hjá Fjölmiðlanefnd, segir ábyrgð samfélagsmiðla mikla.„Samfélagsmiðlar bera auðvitað ábyrgð á efninu sem er þar inni en svo fer þetta að snúast um það hvernig er hægt að hafa eftirlit með öllu efninu því dreifingin er mjög hröð og

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta