Vísitala neysluverðs í júlí 2024 er 644,2 stig, sem er 0,46% hækkun frá því í síðasta mánuði. Að húsnæði undanskildu er hækkunin 0,45%. Þettta segir í tilkynningu frá Hagstofu Íslands. Tólf mánaða verðbólga mælist nú 6,3%, í síðasta mánuði var hún 5,8%. Þetta er meiri hækkun en búist var við. Hagfræðideildir Landsbankans og Íslandsbanka höfðu spáð því að verðbólgan yrði...