Davíð Roach Gunnarsson skrifar:XXX Rottweiler hundar fögnuðu 25 ára starfsafmæli sínu með gríðarlega metnaðarfullum stórtónleikum síðasta föstudag og þar voru allt frá dimmíterandi menntaskólakrílum til dannaðra ömmusystra mætt til að fá sér og fara í Rottweilerhundana í stappfullri Laugardalshöllinni.Menningarsögulegt mikilvægi Rottweiler-hundanna í íslensku samhengi verður seint ofmetið. Áður en þeir völsuðu inn á sviðið um aldamótin var værð yfir íslenskri hipphopp-senu sem átti enn eftir að slíta barnsskónum – en hún skiptist í tvær aðskildar fylkingar sem báðar röppuðu á ensku, hinir rokkuðu og Beastie Boys-skotnu Quarashi og Keeping it Real-bakpokarappið frá Subterrainian og fylgihnettir þeirra. MIKLIHVELLUR ÍSLENSKA RAPPSINS Rottweiler-hundarnir ruddust fram á sjónarsviðið með ei