Landlæknir rannsakar mál sjö vikna gamallar stúlku, sem lést hálfum sólarhring eftir að hún var útskrifuð af Barnaspítalanum. Móðirin segir að starfsfólk spítalans hafi talað niður til sín og sakað sig um móðursýki þegar hún leitaði þangað með dóttur sína. FANNST EKKI HLUSTAÐ Á SIG Á BRÁÐAMÓTTÖKU BARNA Winter Ivy fæddist í september, annað barn Anítu Bjartar Berkeley. Hún hafði verið óvær frá fæðingu en var um mánaðargömul þegar einkenni versnuðu og þeim tók að fjölga.„Hún var með skrýtnar augnhreyfingar og það náttúrulega voru veruleg uppköst nánast frá fæðingu. En þau fóru alltaf stigversnandi,“ segir Aníta.Winter var farin að stífna upp, grét sárar og virtist vansæl. Svo hætti hún að anda og blánaði upp. Aníta leitaði til læknis, reyndi allt sem henni var sagt að prófa og fór loks me