„Það lítur út fyrir að það hafi spilað mjög sterkt inn í hvernig var litið á þessa tegund af sjúkdómi á þessum tíma,“ segir Sigríður Dúa Goldsworthy. „Það hafði gífurlega mikil áhrif á að hann fékk ekki þá læknishjálp sem hann þurfti.“Eitt stærsta og þekktasta morðmál Íslandssögunnar eru morðin í Dillonshúsi 1953 þar sem maður myrti eiginkonu sína og þrjú börn og svipti sig í kjölfarið lífi. Sigríður Dúa segir þessa harmrænu sögu fjölskyldu sinnar í bókinni Morðin í Dillonshúsi en eiginkonan, Hulda Karen Larsen, var móðursystir Sigríðar Dúu. Hún ræddi við Viktoríu Hermannsdóttur í Kastljósi. VILL SEGJA SÖGUNA RÉTT OG VEL ÁN ÞESS AÐ GERA Á HLUT NEINS Að morgni 26. febrúar 1953 varð hræðilegur harmleikur í Dillonshúsi við Suðurgötu 2 í Reykjavík. Heimilisfaðirinn, Sigurjón Magnússon lyfsa